Fréttir | 01. desember 2020 - kl. 11:24
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra kallar eftir tilnefningum til framúrskarandi verkefna á Norðurlandi vestra á árinu 2020. Þetta er í annað sinn sem viðurkenningin verður veitt og gert er ráð fyrir að hún verði afhent á úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra í upphafi árs 2021.
Viðurkenningar fyrir árið 2019 féllu í skaut Sýndarveruleika ehf. og Kakalaskála. Sjá nánar hér.
Viðurkenningarnar eru veittar í tveimur flokkum:
- Verkefni á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar.
- Verkefni á sviði menningar.
Viðurkenningarnar geta fallið í hlut einstaklinga, hópa, félaga, fyrirtækja eða stofnana á Norðurlandi vestra fyrir framlag sitt í ofangreindum flokkum.
Tekið er við tilnefningum til miðnættis 21. desember 2020 í gegnum rafrænt skráningarform. Ekki er tekið við tilnefningum með öðrum hætti.
Reglur um viðurkenningarnar er að finna hér.