Mynd: blonduos.is
Mynd: blonduos.is
Fréttir | 02. desember 2020 - kl. 06:55
Óskað eftir samstarfsaðila um rekstur tjaldsvæðisins á Blönduósi

Blönduósbær óskar eftir samstarfsaðila um rekstur tjaldsvæðisins á staðnum, sem er í Brautarhvammi við þjóðveg 1. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Blönduósbæjar fyrir 15. desember næstkomandi þar sem fram komi m.a. hugmyndir umsækjanda um rekstur svæðisins. Umsóknum má einnig skila rafrænt á netfangið blonduos@blonduos.is og verður þeim öllum svarað, að því er segir í auglýsingu á vef bæjarins.

Í framhaldi af fram komnum hugmyndum aðila áskilur Blönduósbær sér rétt til þess að ganga til samninga við hvaða aðila sem er eða hafna öllum.

Vinsælt tjaldsvæði í þægilegu umhverfi
Tjaldsvæðið er mjög vinsælt til að dvelja á og stutt er í alla þjónustu, s.s. sundlaug, leiksvæði, veitingarstaði og verslun. Svæðið er í fallegu umhverfi og rennur Blanda neðan við svæðið og stutt er einnig í útivistarsvæðið í Hrútey.

Runnar skipta svæðinu upp og er þægilegt umhverfi fyrir tjöld, húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Rafmagnstenglar eru á nokkrum stöðum. Á svæðinu er leiksvæði og stutt í ærslabelg.

Í þjónustuhúsinu er sturta, vatnssalerni, þvottavél og aðstaða til uppþvotta.  Þá er á svæðinu húsnæði fyrir skrifstofu eða aðra þjónustu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga