Þetta er algjör Trump-hani. Mynd. skagastrond.is/Árni Geir Ingvarsson.
Þetta er algjör Trump-hani. Mynd. skagastrond.is/Árni Geir Ingvarsson.
Fréttir | 07. janúar 2021 - kl. 11:10
Trump-hani mynd vikunnar

Hann er glæsilegur haninn sem er á mynd vikunnar á vef Skagastrandar. Þar  segir að valið á myndinni hafi verið tekið með hliðsjón af atburðum gærdagsins í Washington. Litur fjaðranna og kamburinn á hananum minnir óneitanlega á hárlit forseta Bandaríkjanna, sem virðist eiga sér fylgismenn sem finnst gott að láta hann hugsa fyrir sig.

Árni Geir Ingvarsson tók myndina af hananum á Breiðabliki í ágúst árið 2014. Haninn hélt uppi ströngum aga á hænunum sínum sem elskuðu hann og virtu, sama á hvað gekk. Takið eftir sporanum sem er ógnandi aftan á hægri fæti hanans.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga