Mynd: hunathing.is
Mynd: hunathing.is
Fréttir | 07. janúar 2021 - kl. 11:20
Söfnun jólatrjáa á Hvammstanga og Laugarbakka

Starfsmenn þjónustumiðstöðvar Húnaþings vestra verða á ferðinni á Hvammstanga og Laugarbakka í dag, á morgun og mánudaginn 9. janúar til að hirða upp jólatré sem lokið hafa hlutverki sínu þessi jól. Koma þarf jólatrjánum fyrir, út við lóðamörk.

Á vef Húnaþings vestra segir að þeir íbúar sem vilji nýta sér þjónustuna þurfi að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 455-2400 eða senda tölvupóst á skrifstofa@hunathing.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga