Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 11. janúar 2021 - kl. 09:55
FISK ætlar að afhenda Skagstrendingum nokkrar eignir án endurgjalds

Sjávarútvegsfyrirtækið FISK Seafood á Sauðárkróki áformar að afhenda Sveitarfélaginu Skagaströnd nokkrar eignir á staðnum, án endurgjalds. Um er að ræða svokallað stjórnsýsluhús og hús sem áður hýstu rækjuverksmiðju og síldarverksmiðju. Málið hefur ekki verið rætt í sveitarstjórn en Halldóri G. Ólafssyni oddviti segir í samtali við Morgunblaðið að rétt sé að taka við eignunum þótt þær séu ekki í sem bestu ásigkomulagi og gera úr þeim tækifæri.

Fjallað er um þetta í Morgunblaðinu á laugardaginn og vitnar blaðið í opið bréf sem Framkvæmdastjóri FISK, Friðbjörn Ásbjörnsson, ritar til samstarfsfólks nýverið. Efni bréfsins fjallar um fyrirhugaðar fjárfestingar FISK og breytingar á húsakosti, að meðal annars væri fram undan að afhenda framangreindar eignir.

Eignin sem kölluð er stjórnsýsluhús, er skrifstofuhúsnæði sem var í eigu Skagstrendings, áður en FISK tók reksturinn yfir. Sveitarfélagið á hluta af neðstu hæðinni og er þar með skrifstofur sínar auk þess sem greiðslustofa Vinnumálastofnunar er með hluta hæðarinnar á leigu. FISK á tvær efri hæðirnar og miðhæðin stendur auð. Greiðslustofa Vinnumálastofnunar er á efstu hæðinni.

Húsið sem áður hýsti rækjuvinnslu og fiskvinnslu er 1.600 fermetrar að stærð og er það notað sem geymsla og hýsir ákveðna starfsemi sem tengist Kaupfélagi Skagfirðinga. Þriðja húsið er gömul síldarverksmiðja á hafnarsvæðinu sem breytt hefur verið í frystigeymslur.

Í Morgunblaðinu kemur fram húsunum hafi lítið verið haldið við á undanförnum árum og að það muni kosta umtalsverða fjármuni að taka þau í gegn. Halldór segir í samtali við Morgunblaðið að málið sé kynnt þannig að þau verði afhent án endurgjalds og telur hann rétt að taka við þeim og vinna að viðhaldi í áföngum frekar en láta þau grotna áfram niður. Jafnframt verði sköpuð ný tækifæri í atvinnurekstri á Skagaströnd.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga