Fréttir | 12. janúar 2021 - kl. 10:18
Hæfnihringir fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, í samstarfi við landshlutasamtök og atvinnuþróunarfélög á landinu, bjóða konum í atvinnurekstri á landsbyggðinni upp á svokallaða Hæfnihringi. Þeir eru byggðir á aðferðafræði, sem kallast aðgerðanám, en það grundvallast á því að nota raunverulegar áskoranir, verkefni og tækifæri sem grunn fyrir lærdóm.

Markmiðið er að aðstoða frumkvöðlakonur við að komast yfir hindranir með því að styrkja hæfni og færni þeirra, veita stuðning í formi fræðslu og hagnýtra tækja til eflingar og hvatningar ásamt því að efla tengslanet þeirra. Hringjunum er stýrt af leiðbeinendum í gegnum Zoom, sem er gjaldfrjálst netforrit.

Sagt er frá þessu á vef SSNV og þar er hægt að skrá sig en opið er fyrir skráningu til 20. janáur næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga