Fréttir | 13. janúar 2021 - kl. 09:48
Nýjar sóttvarnarreglur tekið gildi

Nýjar sóttvarnareglur tóku gildi á miðnætti og gilda til 17. febrúar næstkomandi. Nú mega tuttugu koma saman í stað tíu áður. Tveggja metra reglan er ennþá í gildi og grímuskylda þar sem ekki er hægt að tryggja slíka fjarlægð. Veitingastaðir mega taka á móti tuttugu gestum í stað fimmtán og líkamsræktarstöðvar mega nú hafa opið fyrir hóptíma með helmingi leyfilegs hámarkfjölda gesta. Íþróttaæfingar barna og fullorðinna með allt að fimmtíu þátttakendum eru heimilaðar, einnig íþróttakeppnir án áhorfenda, og skíðasvæði mega opna.

Fjöldamörk í sviðslistum verða aukin þannig að 50 manns mega vera á sviði og í sal 100 fullorðnir og 100 börn. Sama gildir um aðra menningarviðburði. Þetta er meginefni breyttra reglna um samkomutakmarkanir sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og kynntar voru á fundi ríkisstjórnar í dag.

Helstu breytingar eru þessar:

  • Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns.
  • Verslanir: Gerð er sú breyting að í stað núgildandi reglu sem heimilar 5 viðskiptavini á hverja 10m² er gert ráð fyrir einum viðskiptavini á hverja 4m² en þó ekki fleiri en 100 viðskiptavinum í rými að hámarki.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar: Starfsemi verður heimil með ströngum skilyrðum. Fjöldi gesta má að hámarki vera helmingur þess sem kveðið er á um í starfsleyfi, eða helmingur þess sem búningsaðstaða gerir ráð fyrir ef gestafjölda er ekki getið í starfsleyfi. Einungis er leyfilegt að halda skipulagða hóptíma þar sem hámarksfjöldi í hverjum hópi eru 20 manns og gestir í hvern tíma skráðir. Búningsklefar skulu vera lokaðir. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sóttvarnalæknir mun setja fram ýtarlegar leiðbeiningar um sóttvarnir á heilsu- og líkamsræktarstöðvum.
  • Íþróttaæfingar: Íþróttaæfingar barna og fullorðinna verða heimilar með og án snertingar innan- og utandyra. Ekki mega vera fleiri en 50 manns í rými.
  • Íþróttakeppnir: Íþróttakeppnir barna og fullorðinna verða heimilar en án áhorfenda.
  • Skíðasvæði: Skíðasvæðum verður heimilt að hafa opið með takmörkunum samkvæmt reglu 4 í útgefnum reglum skíðasvæðanna í landinu. Í skíðalyftum skal tryggt að þeir sem eru einir á ferð þurfi ekki að deila lyftustól með öðrum, halda skal tveggja metra nálægðarmörk og sömu reglur gilda um grímunotkun og annars staðar.
  • Sviðslistir, bíósýningar og aðrir menningarviðburðir: Á sviði mega vera allt að 50 manns á æfingum og sýningum. Andlitsgrímur skulu notaðar eins og kostur er og tveggja metra nálægðartakmörkun virt eftir föngum. Sitjandi gestir í sal mega vera allt að 100 fullorðnir og 100 börn fædd 2005 og síðar. Gestir skulu sitja í sætum sem skráð eru á nafn og fullorðnir eiga að bera grímu.
Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga