Jón Örn Stefánsson
Jón Örn Stefánsson
Fréttir | 13. janúar 2021 - kl. 16:07
Nýr fulltrúi Ós-lista í sveitarstjórn

Jón Örn Stefánsson er nýr fulltrúi Ó-lista í sveitarstjórn Blönduósbæjar. Hann tekur sæti Birnu Ágústsdóttur sem hefur beðist lausnar frá störfum í sveitarstjórn og nefndum á vegum sveitarfélagsins. Birna var nýlega skipuð í starf sýslumanns á Norðurlandi vestra. Valgerður Hilmarsdóttir verður jafnframt nýr varamaður í sveitarstjórn.

Í erindi sem Birna sendi sveitarstjórn Blönduósbæjar kemur fram að hún telur sig ekki geta sinnt skyldum í sveitarstjórn samhliða nýja starfinu, án óhæfilegs álags. Auk þess telur hún viðeigandi að stíga til hliðar sem sveitarstjórnarfulltrúi í ljósi þess að hafa verið skipuð í starf sýslumanns.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga