Tilkynningar | 14. janúar 2021 - kl. 14:51
Félags- og tómstundarstarfið á Blönduósi opnar

Félags- og tómstundarstarfið á Blönduósi, að Þverbraut 1, er opið á mánudögum og fimmtudögum frá klukkan 14-17. Getum nú tekið á móti 20 manns. En því miður getum við ekki eins og staðan er boðið upp á spilamennsku. Muna þarf tveggja metra regluna og grímuskildu ef við getum ekki uppfyllt tveggja metra regluna. Erum með grímur og spritt.

Erum nú á nýju ári að hvetja ykkur til að vinna upp garn (afganga) ókláruð verkefni sem sagt taka til í skápum og skúffum.

Erum með fullt af hugmyndum fyrir afgangana ykkar til að nýta þá .

Ef einhver óskar eftir akstri má hringja í síma 455 4785 Sísa.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga