Ljósmynd af heimasÃðu Neista
Fréttir | 14. janúar 2021 - kl. 15:15
Veturinn 2021 ætlar Neisti að bjóða upp á eftirfarandi námskeið á Blönduósi, en námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og tímasetningar og hópaskiptingar verða auglýstar að loknum síðasta skráningardegi á heimasíðu Neista, www.neisti.net.
Skráning fer fram hjá Önnu Margréti á amj@bondi.is eða í síma 848-6774 fyrir 20. janúar.
Almennt reiðnámskeið 8 ára og eldri - 1 x í viku
Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn og að nemandi nái góðu og traustu sambandi við hestinn sinn. Þátttakendum kennt að greina mun á gangtegundum. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu.
Námskeiðið hefst í lok janúar og lýkur í lok apríl.
Kennari: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir
Verð fyrir alla önnina: 20.000 kr.
Utan félags, verð: 25.000 kr.
Pollanámskeið - 3 skipti í mánuði
Ætlað fyrir 7 ára og yngri.
Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir.
Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf.
Kennt verður 1 sinni í viku, þrisvar í mánuði.
Námskeið hefst í byrjun febrúar.
Kennari: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir
Verð: 5.000 kr.
Reiðnámskeið (keppnisnámskeið) - 4 helgar – börn, unglingar og ungmenni
Lögð verður áhersla á vel skipulagða þjálfun og uppbyggingu keppnishests og knapa. Kennslan verður einstaklingsmiðuð, hver knapi setur sér markmið í sinni þjálfun og unnið verður markvisst að þeim markmiðum.
Gerðar verða meiri kröfur til ásetu, stjórnunar, jafnvægis og gangskiptinga en á almennu reiðnámskeiði. Bókleg kennsla fer fram í fyrirlestrarformi. Námskeiðið fer að miklu leyti fram inní reiðhöll, þangað til veður leyfir að farið verði út á keppnisvöllinn.
Þetta námskeið er tilvalið fyrir þá sem stefna á að taka þátt á mótum í vetur og næsta sumar.
Kennsla hefst í febrúar.
Kennari er Bergrún Ingólfsdóttir
Verð 20.000 kr.
Knapamerki 1 og 2
Vegna covid 19 tókst ekki að ljúka knapamerkjum 1 og 2 í fyrra. Stefnt er að því að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í fyrra og ljúka þessum námskeiðum. Gott væri að heyra frá þeim sem tóku þátt í fyrra, hvort það ætli ekki allir að vera með í vetur og klára námskeiðið.
Kennari: Bergrún Ingólfsdóttir
Eins væri gott að frétta hvort áhugi er hjá fleirum en þeim sem voru í knapamerkjum í fyrra. Ef nægur áhugi reynist, verður reynt að bjóða upp á heil námskeið í knapamerkjum 1 og/eða 2. Sjá má frekari upplýsingar um knapamerki á síðunni www.knapamerki.is