Mynd: skra.is
Mynd: skra.is
Mynd: skra.is
Mynd: skra.is
Fréttir | 15. janúar 2021 - kl. 11:26
Hlutfall erlendra ríkisborgara hæst á Blönduósi af sveitarfélögum á Norðurlandi vestra

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum en tölurnar miðast við 1. desember 2020. Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 44% niður í 1%, þó að jafnaði sé hlutfallið um 14% þegar horft er til allra sveitarfélaga. Af sveitarfélögum á Norðurlandi vestra er hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara á Blönduósi eða 14,6%. Meðaltal landshlutans er 9,1%.

Þann 1. desember síðastliðinn voru 140 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu á Blönduósi. Næst hæsta hlutfallið er í Húnaþingi vestra en þar voru 136 erlendir ríkisborgarar skráðir eða 11,2% íbúa sveitarfélagsins. Í Akrahreppi er hlutfallið 9,5%, í Skagafirði 7,8%, í Sveitarfélaginu Skagaströnd 7,4% og í Húnavatnshreppi 5,4%. Lægst er hlutfallið á Norðurlandi vestra er í Skagabyggð eða 4,3%.

Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara á Íslandi er í Mýrdalshreppi. Alls eru 47,3% íbúa hreppsins með erlend ríkisfang þann 1. desember síðastliðinn eða 361 íbúar af 764. Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi 33,2% og Súðavíkurhreppi 31,2%.

Þess má geta að það sveitarfélag sem er með lægsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang er Árneshreppur en einn íbúi hreppsins er með erlend ríkisfang, sem gerir rúmt 2,5% íbúa.

Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang á Suðurnesjum með 23,4% íbúa og Vestfirðir koma næst með 17,1% íbúa. Lægsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang er á Norðurlandi eystra með 8,2%.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga