Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Fimmtudagur, 25. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 14:08 0 0°C
Laxárdalsh. 14:08 0 0°C
Vatnsskarð 14:08 0 0°C
Þverárfjall 14:08 0 0°C
Kjalarnes 14:08 0 0°C
Hafnarfjall 14:08 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 18. janúar 2021 - kl. 10:13
Alþjóðleg brúðulistahátíð og Sölubíll smáframleiðandi valin framúrskarandi verkefni á Norðurlandi vestra árið 2020

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra velja árlega framúrskarandi verkefni á sviði menningarmála annars vegar og atvinnuþróunar og nýsköpunar hins vegar. Í ár hljóta verkefnin Hvammstangi International Puppetry festival og Sölubíll smáframleiðenda á Norðurlandi vestra viðurkenningarnar. Viðurkenningarnar voru afhentar fulltrúum þessara verkefna á dögunum.

Kallað var eftir tilnefningum til verkefnanna meðal íbúa í landshlutanum og bárust fjölmargar, að því er segir í tilkynningu frá SSNV.

Stjórn SSNV ákvað á fundi sínum 12. janúar síðastliðinn að veita eftirfarandi verkefnum viðurkenningar:

Á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar: Vörusmiðja Biopol fyrir Sölubíl smáframleiðenda á Norðurlandi vestra.  Verkefnið er allt í senn, sameiningarafl fyrir smáframleiðendur, aukin þjónusta við viðskiptavini þeirra og nýstárleg og góð lausn á markaðssetningu og sölu afurða beint frá býli. Verkefnið styður við smáframleiðendur á því sviði þar sem þekkingu þeirra margra skortir og er í takt við markmið Sóknaráætlunar landshlutans um aukið virði afurða sem og sölu vara beint frá býli. Sölubíllinn hefur vakið jákvæða og verðskuldaða athygli á svæðinu sem er eitt mesta matvælahérað landsins og er mikilvægur þáttur í áframhaldandi atvinnuþróun og uppbyggingu þess.

Á sviði menningarmála: Handbendi brúðuleikhús fyrir brúðulistahátíðina Hvammstangi International Puppetry Festival. Frá stofnun hefur brúðuleikhúsið Handbendi vakið jákvæða athygli á landshlutanum fyrir metnaðarfull og vönduð menningarverkefni sem farið hafa víða, innanlands sem utan. Brúðulistahátíðin sem haldin var í fyrsta skipti í október 2020 var þar engin undantekning. Að halda alþjóðlega brúðulistahátíð á Norðurlandi vestra hefði alltaf verið ærið verkefni en að gera það á glæstan hátt í heimsfaraldri er listrænt og framkvæmdarlegt afrek. Verkefnið er listamönnum í landshlutanum hvatning til að láta ekkert stoppa sig í að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd og er brúðuleikhúsið Handbendi mikilvægur þáttur í menningarlífi landshlutans.

Viðurkenningarnar voru afhentar fulltrúum þessara verkefna á dögunum. Fyrir hönd brúðulistahátíðarinnar tók Greta Clough listrænn stjórnandi Handbendi brúðuleikhúss við viðurkenningunni en hún er stofnandi leikhússins sem staðsett er á Hvammstanga. Nánari upplýsingar hér: https://www.handbendi.com/ og um brúðulistahátíðina hér: https://www.thehipfest.com/index.html

Fyrir hönd Sölubíls smáframleiðenda tóku Þórhildur M. Jónsdóttir og Auðbjörg Ósk Guðjónsdóttir við viðurkenningunni. Þórhildur er verkefnisstjóri Vörusmiðju Biopol sem er vottað vinnslurými fyrir smáframleiðendur. Abba er starfsmaður Sölubílsins og hefur farið um Norðurland vestra og selt framleiðslu smáframleiðenda í honum. Nánari upplýsingar um Vörusmiðjuna og Sölubílinn er að finna hér: https://vorusmidja.is/

 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið