Tilkynningar | 19. janúar 2021 - kl. 12:36
Staða skjalastjóra er laus við embætti Sýslumannsins á Norðurlandi vestra
Tilkynning frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra

Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra óskar eftir að ráða skjalastjóra í 100% stöðu á aðalskrifstofu embættisins á Blönduósi.  

Þar sem um er að ræða nýtt starf við embættið verður tímabundið ráðið til eins árs en með möguleika á framlengingu að teknu tilliti til mótunar og árangurs af starfinu.  

Skjalastjóri leiðir áframhaldandi þróun og hefur umsjón með skjalavörslu embættisins.  Í boði er áhugavert starf sem reynir á öguð vinnubrögð, samskiptahæfni og fagmennsku.  

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 25.01.2021.

Starfssvið

  • Ábyrgð og umsjón með gerð skjalavistunaráætlunar, þróun skjalastefnu og verklags við skjalastjórnun  
  • Umsjón með móttöku erinda og skjölun  
  • Umsjón með frágangi skjalasafns og eftirfylgni með skjalaskráningu >
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsmenn  
  • Skipulagning og framkvæmd fræðslu um skjalamál
  • Þátttaka í þróun rafrænna skila til Þjóðskjalasafns
  • Almenn skrifstofustörf og þjónusta við stjórnendur og starfsmenn embættisins

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. í bókasafns- og upplýsingafræði, eða góð þekking og reynsla af skjalastjórnun sem lýst er hér að ofan  
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Reynsla af One Systems skjalavörslukerfinu kostur  
  • Góð samskipta- og stamstarfshæfni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund  
  • Frumkvæði, metnaður og nákvæmni í starfi
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti  
  • Almenn ökuréttindi  

 

Frekari upplýsingar um starfið

Umsókn skal skila rafrænt á vefsíðunni Starfatorg.is.  Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um meðmælendur, auk annarra atriða sem máli kunna að skipta. Þar sem verkefni embættisins tengjast náið störfum lögreglu er gert ráð fyrir að umsækjendur veiti embættinu, með skýrum hætti í kynningarbréfi sínu heimild til uppflettingar í málaskrákerfi lögreglu, LÖKE.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga hafa gert.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga