Fréttir | 20. janúar 2021 - kl. 10:00
VG í Norðvesturkjördæmi efnir til forvals

Rafrænt kjördæmisþing Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi var haldið í gærkvöldi. Á fundinum var ákveðið samhljóma að efna til forvals um fimm sæti á framboðslista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar og að kosning í þrjú efstu sætin verði bindandi. Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður flokksins í kjördæminu sækist eftir endurkjöri, en hún skipaði fyrsta sæti framboðslista flokksins við síðustu alþingiskosningar.

Steinunn Þóra Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður kjördæmisráðsins og kosin var kjörstjórn til að sjá um framkvæmd og skipulag forvalsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga