Tilkynningar | 20. janúar 2021 - kl. 18:07
Starfsfólk óskast til afleysinga á Heimilið við Skúlabraut

Heimilið við Skúlabraut á Blönduósi óskar eftir starfsfólki til afleysinga frá janúar-maí 2021 með möguleika á framhaldandi ráðningu. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um tvær stöður er að ræða í 83% starfshlutfalli. Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Tímabil starfa: Janúar – maí 2021, með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfsstöð: Heimilið við Skúlabraut, Blönduósi.
Starfshlutfall: Um tvær stöður er að ræða í 83% starfshlutfalli.
Starfsheiti: Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk III.
Lýsing á starfinu: Starfsmaður starfar á heimili fyrir fatlaða einstaklinga. Starfið felur í sér að aðstoða fatlaða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, s.s. við umönnun og afþreyingu ásamt öðrum verkefnum. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.
Menntunarkrafa: Gerð er krafa um bílpróf.
Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri. Hreint sakavottorð í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks.
Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn.
Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur: Umsóknarfrestur er til og með 25. janúar 2021.
Nánari upplýsingar: Ari Jóhann Sigurðsson, forstöðumaður, arijohann@skagafjordur.is, 893-6673, 452-4960.
Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga