Fréttir | 22. janúar 2021 - kl. 14:54
Góð aðsókn í Hæfnihringi

Rúmlega 40 konur hafa skráð sig í Hæfnihringi, sem er stuðningur fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni. Verkefnið var sett upp sem samstarfsverkefni milli atvinnuþróunarfélaga og landshlutasamtaka síðastliðið haust. Á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra segir að aðsóknin hafi farið fram úr björtustu vonum og að konurnar muni hefja leik innan skamms í sex hópum.

Að verkefninu standa Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi, Vestfjarðarstofa, Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Austurbrú, Samtök sveitarfélaga á suðurlandi og Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum/atvinnuþróunarfélagið Heklan.

Hæfnihringirnir fara fram í gegnum fjarfundarbúnað sem auðveldar konum af öllu landinu að taka þátt. Fundirnir verða sex talsins, einu sinni í viku í sex vikur, í þessari umferð þar sem tæpt verður á helstu áskorunum sem konurnar eru að glíma við, svo sem markaðssetning á samfélagsmiðlum og tímastjórnun.

Í Hæfnihringjunum fá konurnar tækifæri til að tengjast öðrum konum í svipuðum sporum víðs vegar um landið, mynda tengslanet, deila sín á milli og fá ráð hjá öðrum. Auk þess verða leiðbeinendur hringjanna með viðeigandi fræðslu sem miðuð er út frá þeim áskorunum sem hver hópur á sameiginlegt að standa frammi fyrir. Hæfnihringirnir eru fjármagnaðir af samstarfsaðilunum og stendur því konunum til boða endurgjaldslaust.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga