Staðan 22. janúar. Mynd: AST á Norðurlandi vestra
Staðan 22. janúar. Mynd: AST á Norðurlandi vestra
Fréttir | 23. janúar 2021 - kl. 09:06
Skagaströnd "veirufrítt" sveitarfélag

Enginn er í einangrun eða sóttkví vegna kórónuveirusmits á Norðurlandi vestra samkvæmt tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarna á Norðurlandi vestra frá því í gær. Í Morgunblaðinu í dag er sagt frá því að minnst átta sveitarfélög séu skilgreind sem „veirufrí“. Það þýðir að enginn hefur verið skráður í einangrun frá því kórónuveirufaraldurinn kom til landsins. Rætt er við Halldór G. Ólafsson oddvita sveitarstjórnar Skagastrandar og segir hann þetta auðvitað mjög ánægjulegt. Vonast hann til þess að Skagaströnd verði áfram veirufrítt sveitarfélag.

Faraldurinn hefur lagst misjafnlega harkalega á landsmenn en í sumum bæjarfélögum hafa komið upp mörg smit en annar staðar fá. Sveitarfélögin átt sem nefnd eru í Morgunblaðinu eru: Grímsey, Borgarfjörður eystri, Búðardalur, Fáskrúðsfjörður, Tálknafjörður, Hrísey, Vopnafjörður og Skagaströnd.

Halldór segir í samtali við Morgunblaðið að hann telji raunar að Austur-Húnavatnssýsla hafi alfarið sloppið við kórónuveiruna. „Ég hef enga skýringu á því af hverju við á Skagaströnd höfum sloppið. Ég hef einmitt verið að ræða það við konuna mína sem er hjúkrunarfræðingur hvað þetta er fáránlegt. Hvammstangi lenti illa í fyrstu bylgjunni en hér hefur þetta alveg sloppið,“ segir hann. Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga