Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:18 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:18 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:18 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:18 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:18 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:18 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarfélögin fimm í Húnavatnssýslum verða öll rekin með tapi á þessu ári samkvæmt fjárhagsáætlunum þeirra. Heildartapið nemur um 244 milljónum króna. Heildartekjur sveitarfélaganna eru áætlaðar um 4.165 milljónir og heildarútgjöld um 4.409 milljónir. Áætlanirnar eru gerðar við óvenjulegar aðstæður þar sem áhrif kórónuveirufaraldursins hefur áhrif á rekstur sveitarfélaganna.
Tekjur hafa dregist saman bæði frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og vegna lækkunar á öðrum tekjum. Á sama tíma hefur launakostnaður verið að hækka vegna áhrifa lífskjarasamninga. Þá eru sveitarfélögin öll sammála um þær áherslur að skerða ekki þjónustu og leitast við að halda framkvæmdum áfram eins og mögulegt er.
Útsvarstekjur hækkuðu milli ára
Samband íslenskra sveitarfélaga birti í desember samantekt yfir útsvarstekjur sveitarfélaga í staðgreiðslu. Þar kemur fram að staðgreiðslan hafi verið 4% hærri á tímabilinu frá febrúar til desember 2020 en á sömu mánuðum 2019 og hafi hún verið sérstaklega meiri á seinustu mánuðum ársins 2020. Af sveitarfélögum í Húnavatnssýslu var hækkunin mest á Skagaströnd eða 6,53% en í Skagabyggð lækkaði útsvarið um 6% milli ára. í Húnavatnshreppi var hækkunin 2,7% og í Húnaþingi vestra 2,19%. Á Blönduósi nam hækkunin 1,35%.
Í samantekt Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að umskiptin megi rekja til aðgerða ríkisstjórnar í vinnumarkaðsmálum. Skipti þar sköpum hin svokallaða hlutabótaleið og lenging tímabils tekjutengdra atvinnuleysisbóta. En fleira komi einni til. Í því skyni að mæta efnahagslegum áhrifum heimsfaraldursins hafi verið gerð breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda. Breytingin færði launagreiðendum sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna faraldursins heimild til að fresta allt að þremur gjalddögum skatta, þ.m.t. útsvari, á tímabilinu apríl til desember 2020. Í lok árs var sveitarfélögum á landinu greitt útsvar, sem frestað hafði verið, alls 3,1 milljarður krónur. Tekið er fram að sveitarfélögum hafði ekki verið gerð grein fyrir áhrifum frestunar greiðslna og komu greiðslur í lok árs þeim nokkuð á óvart. Hvort þetta breyti forsendum fjárhagsáætlana þessa árs skal ósagt látið.
Tengdar fréttir:
Útsvar í staðgreiðslu hækkar milli ára
Fjárhagsáætlun Húnavatnshrepps samþykkt
Fjárhagsáætlanir Skagastrandar samþykktar
Fjárhagsáætlun unnin við óvenjulegar aðstæður
Sammála um að skerða ekki þjónustu og halda framkvæmdum áfram eins og mögulegt er
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |