Fréttir | 26. janúar 2021 - kl. 13:59
Ein umsókn um starf slökkviliðsstjóra

Ein umsókn barst um starf slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Húnaþings vestra. Starfið var auglýst laust til umsóknar í byrjun þessa mánaðar og rann umsóknarfrestur út 20. janúar síðastliðinn. Um er að ræða 50% starf auk bakvakta. Eini umsækjandinn um starfið var Jóhannes Kári Bragason en hann hefur síðastliðið ár sinnt störfum slökkviliðsstjóra í leyfi Péturs Arnarssonar.

Málið var á dagskrá byggðarráðs Húnaþings vestra í gær og var sveitarstjóra og formanni ráðsins falið að ganga til samninga við Jóhannes Kára.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga