Þríeyki snjótittlinga með sýn í allar áttir. Ljósm: Jóhann Óli Hilmarsson
Þríeyki snjótittlinga með sýn í allar áttir. Ljósm: Jóhann Óli Hilmarsson
Fréttir | 27. janúar 2021 - kl. 10:51
Gaukar þú mat að garðfuglum?

Hin árvissa Garðfuglahelgi Fuglaverndar verður haldin um næstu helgi, 29. janúar - 1. febrúar. Þá eru fuglavinir hvattir til að skrá fugla sem líta við í garðinn í eina klukkustund og senda Fuglavernd talningartölurnar. Viðburðurinn stendur yfir frá og með föstudegi til mánudags og má velja þann dag sem best hentar á því tímabili.

Í tilkynningu frá Fuglavernd segir að nú sé hart í ári hjá mörgum fuglum sem þreyi þorrann og eru fuglavinir hvattir til að gauka að þeim fóðri og fersku vatni reglulega.

Fyrir áhugasama býður Fuglavernd upp á streymisviðburð á Zoom á fimmtudaginn klukkan 17 þar sem farið er yfir framkvæmd talningar og skráningar. Finna má nánari upplýsingar um viðburðinn á Facebook síðu Fuglaverndar og á vefsíðu Fuglaverndar. Einnig má finna þar gagnlegar upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra hér.

Fuglavernd eru frjáls félagasamtök sem vinna að verndun fugla og búsvæða þeirra og eru félagsmenn um 1.300. Fuglavernd er aðili að alþjóðlegu fuglaverndarsamtökunum BirdLife International sem á félaga í 120 löndum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga