Tilkynningar | 18. febrúar 2021 - kl. 09:02
Tilkynning um forval VG í Norðvesturkjördæmi
Frá stjórn kjördæmisráðs

Vinstrihreyfingin grænt framboð í Norðvesturkjördæmi auglýsir eftir frambjóðendum á lista hreyfingarinnar í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar. Forvalið fer fram með rafrænum hætti dagana 23., 24. og 25. apríl. Kosning hefst á miðnætti 23. apríl og stendur til klukkan 17 þann 25. apríl. Kosið verður um fimm efstu sæti á listanum, þar af bindandi í efstu þrjú en í samræmi við forvalsreglur VG.

Framboðsfrestur sætin rennur út á miðnætti 2. apríl. Þá mun kjörstjórn taka við tilnefningum almennra félaga um frambjóðendur fram til 26. mars.

Tilnefningar og yfirlýsingar um framboð sendist á netfangið nordvestur@vg.is.

Kjörstjórn óskar eftir því að framboðsyfirlýsingum fylgi fullt nafn, titill og sæti á lista sem sóst er eftir.

Atkvæðisbær í forvalinu eru öll þau sem skráð eru í hreyfinguna í kjördæminu 10 dögum fyrir kjörfund eða 13. apríl.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga