Fréttir | 18. febrúar 2021 - kl. 16:28
Samkeppni um nafn á ferðamannaveginn um Vatnsnes og yfir í Kolugljúfur

Selasetrið á Hvammstanga hefur sett af stað hugmyndasamkeppni um nýtt nafn á ferðamannahringinn um Vatnsnes og yfir í Kolugljúfur. Leitað er að nafni sem er lýsandi fyrir sex áfangastaði, sem eru Hamarsrétt, Illugastaðir, Hvítserkur, Kolugljúfur, Borgarvirki og Hvammstangi.

Hægt er að taka þátt með því að senda tillögu í gegnum þennan vef hér, eða senda tillögu á netfangið selasetur@selasetur.is fyrir 5. mars næstkomandi. Nafnið á hringveginn verður kynnt 10. mars næstkomandi.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga