Fréttir | 21. febrúar 2021 - kl. 08:05
Mælaborð Byggðastofnunar

Opnað hefur verið vefsvæði á heimasíðu Byggðastofnunar sem er mælaborð með ýmsum byggðatengdum upplýsingum. Í lok sumars kom út gagnatorg um íbúa sveitarfélaga og landshluta og fyrir jól bættist við kortamælaborð um húsnæði fyrir störf án staðsetningar. Nú hafa þrjú gagnvirk mælaborð til viðbótar verið birt, sem eru: sveitarfélagaskipan aftur til ársins 1875, íbúafjölda sveitarfélaga og byggðakjarna og breytingar á íbúafjölda sveitarfélaga og landshluta.

Skoðaðu mælaborð Byggðastofnunar hér.

Sveitarfélagaskipan aftur til ársins 1875 er kort þar sem sveitarfélagaskipan á Íslandi teiknast upp fyrir valið tímabil eða ár og sveitarfélög sem taka breytingum (sameiningar eða uppskiptingar) eru aðgreind með litum. Upplýsingar um heiti og sveitarfélaganúmer auk skýringa á breytingum birtast þegar músarbendill er færður yfir sveitarfélögin á kortinu.

Íbúafjölda sveitarfélaga og byggðakjarna er mælaborðið sem gefur fljótlegt yfirlit yfir íbúafjölda landshluta, sveitarfélaga og byggðakjarna 1. janúar aftur til ársins 2001. Á kortinu ræðst stærð hringjanna sem tákna byggðakjarna landsins af íbúafjölda þeirra og sveitarfélög eru lituð þannig að þau fjölmennustu hafa dekkstan lit en fámenn sveitarfélög eru ljósari. Þegar bendill er færður yfir viðkomandi svæði birtast upplýsingar um fjölda, kyn og aldur íbúa sveitarfélagsins eða byggðakjarnans. Ef smellt er á ákveðinn landshluta í töflu teiknast kortið upp miðað við hann.

Breytingar á íbúafjölda sveitarfélaga og landshluta er kort sem sýnir hlutfallslega fækkun eða fjölgun íbúa sveitarfélaga eða landshluta. Á kortinu litast svæði græn ef íbúum fjölgaði á völdu tímabili en rauð ef þeim fækkaði. Jafnframt birtast ítarlegri upplýsingar og sundurliðun breytinga þegar bendill er færður yfir svæði, meðal annars fæddir umfram dána og flutningsjöfnuður (aðfluttir umfram brottflutta).

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga