Skjáskot af N4
Skjáskot af N4
Fréttir | 25. febrúar 2021 - kl. 09:33
Erlendir fjárfestar áhugasamir um koltrefjaverksmiðju í Skagafirði

Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar, er gestur Karls Eskils Pálssonar í þættinum Landsbyggðum sem sýndur verður klukkan 20:30 í kvöld á sjónvarpsstöðinni N4. Þar verður meðal annars er rætt um koltrefjaverksmiðju í Skagafirði. Verði slík verksmiðja að veruleika er líklegt að nokkrir tugir nýrra starfa skapist í Skagafirði.

Á síðasta ári skrifuðu Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Sigfús Ingi undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu koltrefjaframleiðslu í Skagafirði en heimamenn hafa unnið að slíkri verksmiðju í um tólf ár.

„Við verðum mjög vör við ákveðinn áhuga erlendra fjárfesta. Horfurnar eru ágætar og við höfum undirbúið jarðveginn nokkuð vel, svo sem varðandi staðsetningu verksmiðjunnar og fleira. Það var mikilvægt að hafa þessa viljayfirlýsingu frá stjórnvöldum,“ segir Sigfús Ingi meðal annars í viðtalinu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga