Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 17:44 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 17:44 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 17:44 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 17:44 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 17:44 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 17:44 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Upplýsingatæknifélögin Fjölnet og PREMIS hafa sameinast. Sérsvið félagana er rekstur tölvukerfa, alrekstursþjónusta og hýsing. Auk þess sinna félögin fjölbreyttri þjónustu á sviði upplýsingatækni. Áætluð velta sameiginlegs félags á árinu 2021 er á annan milljarð. Við viðskiptin verða Sigurður Pálsson og Pétur Ingi Björnsson, eigendur Fjölnets, starfandi hluthafar PREMIS, að því er fram kemur í tilkynningu. Félögin munu starfa undir nafni PREMIS með starfsstöðvar á Sauðárkróki og í Reykjavík.
„Það er mikil samlegð með rekstri þessara félaga og í krafti aukinnar stærðar munum við geta boðið enn betri þjónustu og aukið lausnaframboð á frábærum verðum. Við náum einnig að mæta aukinni kröfu um öryggisfjarlægðir með hýsingu gagna bæði í Reykjavík og á Sauðárkróki. Fjölnet eykur okkar þekkingu og á sama tíma vonumst við til að geta boðið enn betri þjónustu á Norðurlandi með þessari sameiningu“, segir Kristinn Elvar Arnarson forstjóri PREMIS.
„Við sjáum mikil tækifæri í þessari sameiningu og hlökkum til að kynna viðskiptavinum aukið lausnaval sem við getum nú boðið upp á. Einnig er mikilvægt fyrir okkur að með þessu styrkjum við hýsingarsal okkar á Sauðárkróki og er ánægjulegt að geta aukið uppbyggingu á sviði upplýsingatækni á Norðurlandi“, segir Sigurður Pálsson framkvæmdastjóri Fjölnets.
Sameiginlegt félag er með ríflega 50 starfsmenn.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |