Lee Ann Maginnis
Lee Ann Maginnis
Fréttir | 27. febrúar 2021 - kl. 15:07
Lee Ann Maginnis er nýr formaður heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra

Lee Ann Maginnis var kosin formaður heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra á fundi nefndarinnar í gær. Lee Ann sem fædd er árið 1985 og er menntuð sem lögfræðingur og kennari. Hún er  búsett á Blönduósi og starfar sem umsjónarmaður dreifnáms Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra.

Auk Lee Ann sitja í nefndinni Ína Ársælsdóttir frá Húnaþingi vestra og er hún varaformaður, Haraldur Þór Jóhannsson frá Skagfirði, Margrét Eva Ásgeirsdóttir frá Skagafirði, Nanna Árnadóttir frá Fjallabyggð og Guðný Kristjánsdóttir sem er fulltrúi SA.

Starfssvæði nefndarinnar er víðfeðmt en það nær frá og með Fjallabyggð í austri og vestur til Borðeyrar og síðan alla leið suður á Hveravelli.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga