Tilkynningar | 01. mars 2021 - kl. 20:40
Sumarstörf við Íþróttamiðstöðina á Blönduósi
Frá Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi

Við auglýsum eftir tveimur konum til starfa við Íþróttamiðstöðina á Blönduósi fyrir sumarið 2021. Um er að ræða 100% stöðugildi, vaktavinnu og unnið um helgar skv. vaktaskipulagi. Ráðningartíminn (sumartíminn) er frá 1. júní til 20. ágúst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Fjölbreytt og skemmtilegt starf þar sem mikill metnaður er að hafa hreint og snyrtilegt umhverfi og taka vel á móti viðskiptavinum. Góður vinnuandi þar sem við virðum hvort annað, styðjum hvort annað og stöndum saman í að gera Íþróttamiðstöðina að skemmtilegum vinnustað.

Í starfinu felst m.a.:

  • Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði.
  • Klefavarsla/baðvarsla/gangavarsla.
  • Baðvarsla í kvennaklefum.
  • Afgreiðsla og önnur þjónusta við gesti.
  • Þrif.

Hæfniskröfur:

  • Góð samskiptahæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
  • Tölvukunnátta.

Umsækjendur þurfa að vera orðnir 18 ára.

Umsækjendur þurfa að hafa lokið námskeiði í skyndihjálp og standast sundpróf laugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum. Íþróttamiðstöðin á Blönduósi sér til þess að allir fái þetta námskeið og geti tekið hæfnispróf áður en sumartímabilið hefst.

Umsóknum skal skila á netfangið robert@imb.is.  Umsóknarfrestur er til 14. mars 2021.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Róbert Daníel Jónsson forstöðumaður í Íþróttamiðstöðinni á

Blönduósi, s: 455-4780 eða með tölvupósti á netfangið robert@imb.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga