Fréttir | 02. mars 2021 - kl. 11:23
Nýtt riðutilfelli í Vatnsneshólfi

Riðuveiki hefur verið staðfest á búi í Húnaþingi vestra, í Vatnsneshólfi. Síðast greindist riða í hólfinu árið 2015. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða, að því er segir í tilkynningu. Riðan greindist í sýni úr kind frá bænum Vatnshóli en á bænum eru nú um 925 fjár.

Í tilkynningu MAST segir að bóndinn hafði haft samband við Matvælastofnun sem tók sýni úr kindinni og sendi á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum þar sem riðuveiki var staðfest.

Búið er í Vatnsneshólfi og í því hólfi hefur riðuveiki komið upp á einu búi á undanförnum 20 árum. Síðast greindist riða á bænum árið 1999. Ekki er talið að þetta tilfelli tengist riðutilfellunum í Tröllaskagahólfi þar sem riða greindist á fimm bæjum fyrir áramót.

Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttekt á búinu til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð, að því er segir í tilkynningu MAST.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga