Tilkynningar | 03. mars 2021 - kl. 11:10
Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Austur-Húnavatnssýslu
Frá stjórn FSAH

Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Austur-Húnavatnssýslu verður haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi, þriðjudaginn 9. mars kl. 20:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf einnig koma fulltrúar frá Landssamtökum sauðfjárbænda á fundinn og fara yfir það sem er efst á baugi hjá samtökunum, meðal annars mögulegar breytingar á félagskerfi landbúnaðarins.

Minnum fundargesti á að virða sóttvarnir.

Stjórn FSAH

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga