Tilkynningar | 07. mars 2021 - kl. 19:39
Umsóknir um orlofshús 2021
Frá Stéttarfélaginu Samstöðu

Nú, er komið að sumarúthlutun 2021 og geta félagsmenn okkar sótt um vikudvöl á eftirfarandi stöðum: Illugastöðum, Einarsstöðum, Ölfusborgum og Jötnagarðsás við Munaðarnes.  

Félagsmenn geta nálgast umsóknareyðiblaðið á heimasíðu félagsins www.samstada.is, prentað út, sent í tölvupósti eða nálgast það á skrifstofum félagsins á Blönduósi eða Hvammstanga.

Umsóknum sé skilað á skrifstofur félagsins eigi síðar en 27.mars n.k.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga