Mynd: hunvetningur.is / Elín og Rán
Mynd: hunvetningur.is / Elín og Rán
Fréttir | 09. mars 2021 - kl. 16:44
Stöðnun er ekki valkostur

Seinni rafræni íbúafundurinn um sameiningarviðræður sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu fór fram á laugardaginn. Um 25 manns tóku þátt í fundinum og um 30 fylgdust með honum í streymi. Á fyrri fundinum sem fór fram miðvikudaginn 3. mars voru þátttakendur og áhorfendur rúmlega 200 talsins. Á fundinum á laugardaginn kom fram að umræða um sameininguna á meðal íbúa sé að aukast og að frekari upplýsingagjöf sé mikilvæg, sérstaklega meðal ungs fólks.

Þátttakendur voru sammála um að á næstu misserum yrðu breytingar í stjórnsýslu, atvinnulífi og þjónustu á svæðinu, hvort sem að sameining yrð eða ekki. Spurningin sem íbúar standi þá frammi fyrir væri hvort betra sé fyrir samfélagið að takast á við þær breytingar í einu sveitarfélagi eða fjórum. Stöðnun væri ekki valkostur.

Fundarfólk var sammála um að í sameiningu sveitarfélaganna væru mörg tækifæri og þá helst í að blása til sóknar í atvinnu- og byggðamálum og bættum samgöngum innan svæðisins og hætta endalausum varnarleik. Að sama skapi væri mikil óvissa og eðlilegt að fólk hefði áhyggjur af því hvernig þróunin yrði. Íbúar óttast að missa áhrif og að dregið verði úr þjónustu, viðhaldi eða framkvæmdum í þeirra nærumhverfi og að fjármál sveitarfélagsins verði ekki nægilega sterk til að byggja upp þjónustu og sækja fram.

Mikilvægt væri að varðveita núverandi þjónustu og bæta hana, halda sérstöðu hvers staðar eða byggðakjarna og halda áfram að halda staðbundna menningaratburði eins og þorrablót. Bent var á að í Húnaþingi vestra væru enn haldin fjögur þorrablót og þau skipulögð þannig að fólki geti mætt á þau öll. Þá var dregið fram að mikilvægt sé að undirbúa allar breytingar vel og upplýsa íbúa, hvort sem það er sameining sveitarfélaga eða sameining skóla.

Sjá nánari umfjöllun um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu og um íbúafundina á vefnum Húnvetningi, www.hunvetningur.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga