Fréttir | 17. mars 2021 - kl. 10:07
Stígandi smíðar innréttingar í Grunnskóla Húnaþings vestra

Samið verður við Trésmiðjuna Stíganda á Blönduósi um innréttingar í Grunnskóla Húnaþings vestra. Tvö tilboð bárust í innréttingarnar, annað frá Stíganda að fjárhæð 31,8 milljónir króna og hitt frá Nýform að fjárhæð 36 milljónir. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 21 milljón. Byggðarráð Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum nýverið að ganga til samninga við lægstbjóðanda.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga