Mynd: hunathing.is
Mynd: hunathing.is
Fréttir | 07. apríl 2021 - kl. 09:08
Kallað eftir ábendingum við tillögur starfshóps

Íbúum í Húnaþingi vestra gefst nú kostur á að koma með ábendingar við tillögur starfshóps sem skipaður var til að rýna teikningar fyrir fjölnota rými í austurenda Íþróttamiðstöðvar Húnaþings vestra, sem m.a. er ætlað fyrir fólk með sértækar þarfir og aðstöðu fyrir keppnislið. Starfshópurinn átti einnig að koma með hugmyndir að framtíðarskipulagi útisvæðis við sundlaugina. Hægt er að senda inn ábendingar til og með 8. apríl næstkomandi.

Helstu hugmyndir starfshópsins eru:

  • Sérbúningsklefi og klefi fyrir fatlað fólk með aðstöðu fyrir aðstoðarmann(þar sem gufubað er núna). Hjólastólaaðgengi frá anddyri um gang að sunnanverðu.
  • Búningsaðstaða – Aðstaða sem t.d nýtist keppnisliðum.
  • Eimbað/ Gufubaðsklefi ásamt sturtu verði staðsett á útisvæði í norðaustur horni við heitapottinn.
  • Kaldur pottur verði niðurgarfinn á svipuðum stað og núverandi kaldur pottur er staðsettur.
  • Gæslurými aukið. Viðbygging til suðurs frá núv. gæslurými til að bæta öryggi með betri ásýnd yfir svæðið fyrir starfsfólk.
  • Geymsluskúr fyrir áhöld og tæki verði komið fyrir á svæði undir rennibrautinni.
  • Sjúkraþjálfun – leitast verði við að finna aðstöðu fyrir sjúkraþjálfara í húsnæði Íþróttamiðstöðvarinnar

Sjá má tillögur að staðsetningum í meðfylgjandi teikningu hér.

Hægt er að senda inn ábendingu hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga