Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 21:41 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 21:41 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 21:41 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 21:41 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 21:41 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 21:41 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra skorar á RARIK að endurskoða fasta staðsetningu starfa í Reykjavík og auglýsa þess í stað störf án staðsetningar. Þannig stuðli fyrirtækið að áframhaldandi uppbyggingu starfsstöðva sinna á landsbyggðinni, þar sem viðskiptavinir þess eru staðsettir. Þetta kemur fram í bókun stjórnar SSNV frá fundi sínum í gær.
Tilefni bókunar stjórnar SSNV er auglýsing sem RARIK birti nýverið þar sem óskað var eftir að ráða verkefnisstjóra stærri framkvæmda. Í auglýsingunni var tiltekið að starfsstöð starfsmannsins væri í Reykjavík.
Í bókun stjórnar SSNV segir:
Nýverið auglýsti RARIK laust til umsóknar starf verkefnisstjóra stærri framkvæmda hjá félaginu. Í auglýsingunni er tiltekið að starfsstöð viðkomandi starfsmanns verði í Reykjavík. Vert er að vekja athygli á að starfsemi RARIK er öll á landsbyggðinni ef frá eru taldar höfuðstöðvar. Allar þær framkvæmdir sem nýr verkefnisstjóri mun hafa umsjón með verða því á landsbyggðinni. Þess vegna vekur það furðu stjórnar SSNV að föst starfsstöð í Reykjavík sé tiltekin í auglýsingunni en starfið ekki auglýst án staðsetningar. Þegar eru til staðar fjölmargar starfsstöðvar félagsins um land allt, m.a. á Blönduósi og Sauðárkróki auk ný aflagðrar starfsstöðvar á Hvammstanga.
Stjórn SSNV veitti jafnframt nýverið umsögn um þingsályktunartillögu um flutning höfuðstöðva RARIK á landsbyggðina. Í umsögninni er tekið undir efni þingsályktunartillögunnar og minnt á að í skýrslu Norðvesturnefndarinnar frá árinu 2014 um eflingu byggðaþróunar, fjölgun atvinnutækifæra og auknar fjárfestingar á Norðurlandi vestra var ein tillagnanna flutningur höfuðstöðva RARIK á Sauðárkrók auk eflingar starfsstöðva á Blönduósi og Hvammstanga.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |