Fréttir | 07. apríl 2021 - kl. 10:47
Skorað á RARIK að endurskoða fasta staðsetningu starfa í Reykjavík

Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra skorar á RARIK að endurskoða fasta staðsetningu starfa í Reykjavík og auglýsa þess í stað störf án staðsetningar. Þannig stuðli fyrirtækið að áframhaldandi uppbyggingu starfsstöðva sinna á landsbyggðinni, þar sem viðskiptavinir þess eru staðsettir. Þetta kemur fram í bókun stjórnar SSNV frá fundi sínum í gær.

Tilefni bókunar stjórnar SSNV er auglýsing sem RARIK birti nýverið þar sem óskað var eftir að ráða verkefnisstjóra stærri framkvæmda. Í auglýsingunni var tiltekið að starfsstöð starfsmannsins væri í Reykjavík.

Í bókun stjórnar SSNV segir:

Nýverið auglýsti RARIK laust til umsóknar starf verkefnisstjóra stærri framkvæmda hjá félaginu. Í auglýsingunni er tiltekið að starfsstöð viðkomandi starfsmanns verði í Reykjavík. Vert er að vekja athygli á að starfsemi RARIK er öll á landsbyggðinni ef frá eru taldar höfuðstöðvar. Allar þær framkvæmdir sem nýr verkefnisstjóri mun hafa umsjón með verða því á landsbyggðinni. Þess vegna vekur það furðu stjórnar SSNV að föst starfsstöð í Reykjavík sé tiltekin í auglýsingunni en starfið ekki auglýst án staðsetningar. Þegar eru til staðar fjölmargar starfsstöðvar félagsins um land allt, m.a. á Blönduósi og Sauðárkróki auk ný aflagðrar starfsstöðvar á Hvammstanga.  

Stjórn SSNV veitti jafnframt nýverið umsögn um þingsályktunartillögu um flutning höfuðstöðva RARIK á landsbyggðina. Í umsögninni er tekið undir efni þingsályktunartillögunnar og minnt á að í skýrslu Norðvesturnefndarinnar frá árinu 2014 um eflingu byggðaþróunar, fjölgun atvinnutækifæra og auknar fjárfestingar á Norðurlandi vestra var ein tillagnanna flutningur höfuðstöðva RARIK á Sauðárkrók auk eflingar starfsstöðva á Blönduósi og Hvammstanga.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga