Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 24. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 04:41 0 0°C
Laxárdalsh. 04:41 0 0°C
Vatnsskarð 04:41 0 0°C
Þverárfjall 04:41 0 0°C
Kjalarnes 04:41 0 0°C
Hafnarfjall 04:41 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Á Kjalvegi við Blöndulón. Ljósm: Hallbjörn Hallbjörnsson
Á Kjalvegi við Blöndulón. Ljósm: Hallbjörn Hallbjörnsson
Fréttir | 08. apríl 2021 - kl. 07:01
Vilja endurnýja veginn yfir Kjöl með einkaframkvæmd

Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um endurnýjun vegarins yfir Kjöl með einkaframkvæmd. Sambærilegt mál hefur í þrígang verið flutt á Alþingi en ekki náð fram að ganga. Flutningsmenn tillögunnar vilja að Alþingi álykti að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að hefja undirbúning að endurnýjun vegarins og geri hann að vegi sem hægt sé að halda opnum stóran hluta ársins.

Þá vilja þeir að ráðherra hlutist í þessu skyni til um að gerð verði forkönnun á umhverfisáhrifum ásamt samfélagslegum og efnahagslegum áhrifum framkvæmdarinnar, m.a. á ferðaþjónustu, byggðaþróun og náttúruvernd. Stefnt verði að því að undirbúningi framkvæmda ljúki fyrir árslok 2022 og framkvæmdir hefjist í beinu framhaldi. Framkvæmdin hefur ekki áhrif á forgangsröðun samgönguáætlunar. Flutningsmenn tillögunnar eru Njáll Trausti Friðbertsson, Ásmundur Friðriksson, Haraldur Benediktsson, Jón Gunnarsson, Vilhjálmur Árnason.

Í tillögunni felst að endurgerð Kjalvegar verði einkaframkvæmd, að einkaaðili taki að sér fjármögnun, framkvæmd og rekstur verkefnisins í umboði hins opinbera. Gert er ráð fyrir að framkvæmdin standi undir sér að öllu leyti með notendagjöldum með svipuðum hætti og staðið hefur verið að málum varðandi Hvalfjarðargöng, þar sem gjöldin hafa staðið undir fjármögnun, rekstri og viðhaldi ganganna. Aðkoma hins opinbera að slíkum verkefnum felst einkum í að heimila framkvæmdina og setja um hana reglur.

Í greinargerð segir að tillagan lýtur að því að vegurinn yfir Kjöl verði endurnýjaður og lagður bundnu slitlagi í einkaframkvæmd þannig að unnt verði að halda honum opnum mestan hluta ársins svo að betur megi nýta hann til að mæta aukinni umferð á svæðinu með tilkomu fleiri ferðamanna. Betri vegir um hálendið auki ekki einungis ferðaþjónustu á einstökum stöðum og styrki þannig hverja byggð fyrir sig heldur gæfist með betri hálendisvegum tækifæri til að styrkja landsbyggðina í heild með aukinni samvinnu og samkeppni milli einstakra byggðarlaga.

Þá segir í greinargerðinni: „Norðvesturland hefur farið nokkuð halloka í atvinnu- og byggðamálum síðustu áratugi og þar hefur íbúum og störfum fækkað jafnt og þétt. Heilsársvegur yfir Kjöl myndi styrkja atvinnulíf í landshlutanum auk þess sem ferðaþjónusta getur skipt grundvallarmáli þegar kemur að því að viðhalda lágmarksþjónustu í litlum byggðarlögum þar sem íbúafjöldi stendur ekki undir henni einn og sér.“

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið