Formaður Hollvina HSB afhendir Sigurbjörgu Helgu Birgisdóttur deildarstjóra sjúkradeildar formlega Buffalo rafdrifinn hægindastól á sjúkradeild.
Formaður Hollvina HSB afhendir Sigurbjörgu Helgu Birgisdóttur deildarstjóra sjúkradeildar formlega Buffalo rafdrifinn hægindastól á sjúkradeild.
55 tommu sjónvarpstæki sem staðsett er á sjúkradeild B.
55 tommu sjónvarpstæki sem staðsett er á sjúkradeild B.
Buffalo rafdrifinn hægindastól á sjúkradeild.
Buffalo rafdrifinn hægindastól á sjúkradeild.
Fréttir | 08. apríl 2021 - kl. 15:47
Aðalfundur Hollvinasamtaka HSB
Frá stjórn

Aðalfundur Hollvinasamtaka HSB var haldinn í gær. Á fundinum var hlaupið yfir starfsemi síðastliðins árs. Í janúar var keyptur nuddbekkur og æfingatæki í aðstöðu sjúkraþjálfara. Þá voru gefnar spjaldtölvur og heyrnatól á deildir HSB og Hnitbjarga. Súrefnistæki fór til  Sæborgar á Skagaströnd og þá söfnuðu þær Angela Berthold sjúkraþjálfari og Eva Hrund Pétursdóttir iðjuþjálfi fyrir þjálfunarhjóli fyrir sjúkradeild 1 og 2. Glæsilegt framtak hjá þeim stöllum.

Á fundinum í gær afhentu hollvinir sjúkradeild HSB rafdrifinn hægindastól. Sigurbjörg S. Guðmundsdóttir ættuð frá Neðri Mýrum færði samtökunum peningagjöf til minningar um eiginmann sinn, Jón Bjarnason sem lést langt fyrir aldur fram. Hann hefði orðið 75 ára þann 24. janúar síðastliðinn. Ákveðið var að kaupa þennan stól og er Sigurbjörgu þakkað hjartanlega fyrir sitt framlag. Stóllinn kemur skjólstæðingum HSB svo sannarlega að góðum notum.

Í byrjun þessa árs fengu hollvinasamtökin höfðinglega gjöf frá ELKO, fyrir tilstilli Báru Sifjar Magnúsdóttur, sem er barnabarn Báru Þorvaldsdóttur og Gunnars heitins Sveinssonar frá Skagaströnd. Bára Sif vinnur hjá ELKO og var það fyrir hennar tilstilli að hollvinasamtökin fengu úthlutað 100.000 króna úttekt hjá fyrirtækinu. Styrkurinn var notaður til kaupa á 55 tommu sjónvarpstæki sem staðsett er á sjúkradeild B.

Viljum við þakka öllum félögum okkar og velunnurum fyrir stuðninginn undan farin ár og munum að standa þarf vörð um Heilbrigðisstofnunina okkar hér á Blönduósi. Munum nýir félagar ávallt velkomnir.

Stjórnin

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga