Mynd: hnv.is
Mynd: hnv.is
Fréttir | 13. apríl 2021 - kl. 12:53
Hyggst fjarlægja númerslausa bíla

Heilbrigðiseftirlitið á Norðurlandi vestra hyggst nú á vordögum fjarlægja númerslausa bíla og annað á lóðum sem þykir lýti á umhverfinu. Verkefnið er unnið í samráði við viðkomandi sveitarfélög og í samræmi við reglugerð um hollustuhætti. Í tilkynningu frá eftirlitinu segir að leyfilegt sé að geyma númerslausan bíl á innkeyrslu, ef viðkomandi bíll veldur ekki mengun eða er augljóslega ekki lýti á umhverfi.

„Fyrirhugað verklag er að límt verði aðvörunarorð á bíla og gefinn vikufrestur til þess að bregðast við með því t.d.; að eigandi fjarlægi viðkomandi bíl, óski eftir frekari rökstuðningi eða sæki um lengri frest. Ef ekki er brugðist við aðvörun með neinum hætti, þá er gefinn frestur í viku til viðbótar og bíll eða munur fjarlægður. Áherslan er á íbúðahverfi, með það að markmiði að bæir og þorp á Norðurlandi vestra verði snyrtileg, þannig að sómi verði af,“ segir í tilkynningunni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga