Starfsmenn Mannvits við mælingar á Djúpadalsá í Skagafirði. Mynd: ssnv.is
Starfsmenn Mannvits við mælingar á Djúpadalsá í Skagafirði. Mynd: ssnv.is
Fréttir | 16. apríl 2021 - kl. 10:14
Mæla rennsli átta vatnsfalla

Á vef Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra er sagt frá því að starfsmenn verkfræðistofunnar Mannvits hafi nýlega verið á svæðinu í þeim tilgangi að mæla rennsli átta vatnsfalla. Mælingarnar eru kostaðar að miklu leyti af Smávirkjanasjóði samtakanna en tilgangur hans er að styrkja fyrstu skrefin í rannsóknum á mögulegum rennslisvirkjunum undir 10 megavöttum að stærð á Norðurlandi vestra.

Fyrir ári síðan var auglýst eftir umsóknum um styrki í Skref 1, frummat smávirkjana, sem eru grunnrannsóknir á rennsli vatnsfalla og fyrstu hugmyndir um virkjanir og kostnað við byggingu þeirra. Alls bárust tólf umsóknir og var átta styrkjum úthlutað. Á vef SSNV segir að gert hafi verið ráð fyrir að mælingar færu fram síðastliðið haust en vegna mikillar úrkomu var mælingum frestað þar til núna í apríl þar sem þær þurfa að fara fram þegar lágrennsli er í vatnsföllunum. Búast má við niðurstöðum núna í næsta mánuði.

Þetta er í þriðja sinn sem Smávirkjanasjóðurinn styður grunnrannsóknir á rennsli vatnsfalla á Norðurlandi vestra. Árið 2018 voru gerðar rannsóknir á átta vatnsföllum og árið 2019 studdi sjóðurinn framhaldsrannsóknir á tveimur vatnsföllum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga