Fréttir | 16. apríl 2021 - kl. 10:33
Samkeppniseftirlitið heimilar samruna kjötfyrirtækja með skilyrðum

Samkeppniseftirlitið hefur heimilað samruna Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH Afurða með skilyrðum. Á vef eftirlitsins segir að samrunaaðilar hafi brugðist við mati Samkeppniseftirlitsins á skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni með því að setja fram tillögur að skilyrðum sem væri til þess fallnar að mæta áhyggjum eftirlitsins af skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni, en gerðu um leið samrunaaðilum kleift að framkvæma samrunann og ná markmiðum hans.

Með skilyrðunum, sem felst í sátt samrunaaðila og Samkeppniseftirlitsins, skuldbinda aðilar sig til að grípa til aðgerða sem felast m.a. í að efla og tryggja samningsstöðu bænda. Þannig skuldbindur sameinað fyrirtæki sig að standa ekki í vegi fyrir að bændur færi viðskipti sín frá sameinuðu félagi til keppinauta þess. Jafnframt er tryggður réttur bænda til að semja um afmarkaða þjónustu við sameinað fyrirtæki, s.s. slátrun, eða aðra þjónustu við þriðja aðila, s.s. vinnslu.

Á vef Samkeppniseftirlitsins er haft eftir Páli Gunnari Pálssyni, forstjóra eftirlitsins, að það sé mat Samkeppniseftirlitsins að sáttin við samrunaaðila verji hagsmuni bænda og neytenda og geri sameinuðu fyrirtæki jafnframt kleift að eflast og dafna á grunni virkrar samkeppni og aðhalds af hendi bænda. „Það er hagur íslenskra neytenda og bænda að virk samkeppni ríki á mörkuðum fyrir slátrun gripa og í heildsölu og vinnslu kjötafurða. Kannanir á meðal bænda gefa til kynna víðtækan stuðning við aðgerðir til þess að standa vörð um samkeppni á þessu sviði,“ segir Páll Gunnar.

Samrunaaðilar eru Norðlenska, sem er framleiðslufyrirtæki á sviði kjötvöru og sé með starfsstöðvar á Akureyri, Húsavík og í Reykjavík. Kjarnafæði, sem er matvælavinnslufyrirtæki á Svalbarðseyri sem framleiðir og selur ýmsar vörur úr lamba-, nauta-, grísa- og hrossakjöti og SAH Afurðir sem rekur sláturhús og afurðasölu á Blönduósi.

Sjá ítarlegri umfjöllun á vef Samkeppniseftirlitsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga