Á Skagaströnd er unnið að endurbótum á húsnæði undir nýjan veitingastað sem staðsettur verður við höfnina og á að heita Harbor, upp á ensku. Tvenn hjón standa að veitingastaðnum, þau Stefán Sveinsson og Hafdís Ásgeirsdóttir, og Slavko Velemir og Birna Sveinsdóttir. Stefna þau ótrauð að því að opna hann á sjómannadaginn. Norðlenska sjónvarpsstöðin N4 var á Skagaströnd nýverið forvitnaðist um áformin.
Sjá má heimsókn N4 á Skagaströnd í þættinum Að norðan.