Fréttir | 21. apríl 2021 - kl. 12:17
Framboðslisti Framsóknar í Norðvesturkjördæmi kynntur

Framsóknarmenn í Norðvesturkjördæmi hafa ákveðið framboðslista flokksins fyrir alþingiskosningarnar 25. september næstkomandi. Framboðslistinn var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum á fjölmennu aukakjördæmisþingi Kjördæmissambands Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi sem haldið var í fjarfundi í gær. 

Póstkosning um fimm efstu sæti listans fór fram dagana 16. febrúar - 13. mars,  en samkvæmt framboðsreglum Framsóknar gerir kjörstjórn tillögu um skipan framboðslistans í heild að öðru leyti til stjórnar kjördæmissambandsins sem leggur hann fyrir aukakjördæmisþing.

​Í tilkynningu frá Framsókn segir að framboðslistinn í Norðvesturkjördæmi sé skipaður öflugu fólki með fjölbreyttan bakgrunn sem eigi það sameiginlegt að vilja vinna að stöðugum umbótum á samfélaginu á grunni samvinnu og jafnaðar. Á listanum fari saman víðtæk þekking, reynsla, framsýni og kraftur til að vinna að öflugu samfélagi, með öruggar grunnstoðir og fjölbreytt atvinnulíf í öndvegi.

Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn og forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar er oddviti listans. Í öðru sæti er Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, háskólanemi og formaður Sambands ungra Framsóknarmanna. Þriðja sætið skipar Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður. Í fjórða sæti er Friðrik Már Sigurðsson, bóndi og formaður byggðarráðs Húnaþings vestra og fimmta sætið skipar Iða Marsibil Jónsdóttir, skrifstofu- og mannauðsstjóri og forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar. Sveinn Bernódusson, járnsmíðameistari í Bolungarvík, skipar heiðurssæti listans.

Framboðslisti Framsóknar í Norðvesturkjördæmi

  1. Stefán Vagn Stefánsson, Sauðárkróki - Yfirlögregluþjónn og forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar
  2. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Borgarbyggð - Háskólanemi og formaður Sambands ungra Framsóknarmanna
  3. Halla Signý Kristjánsdóttir, Önundarfirði – Alþingismaður
  4. Friðrik Már Sigurðsson, Húnaþingi vestra - Bóndi og formaður byggðarráðs Húnaþings vestra
  5. Iða Marsibil Jónsdóttir, Vesturbyggð - Skrifstofu- og mannauðsstjóri og forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar
  6. Elsa Lára Arnardóttir, Akranesi - Aðstoðarskólastjóri, formaður bæjarráðs Akraneskaupstaðar og f.v. alþingismaður
  7. Þorgils Magnússon, Blönduósi - Skipulags- og byggingarfulltrúi
  8. Gunnar Ásgrímsson, Sauðárkróki – Háskólanemi
  9. Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir, Stykkishólmi – Nemi
  10. Jóhanna María Sigmundsdóttir, Búðardal - Verkefnastjóri og f.v alþingismaður
  11. Ragnheiður Ingimundardóttir, Strandabyggð – Verslunarstjóri
  12. Gauti Geirsson, Ísafirði – Nemi
  13. Sæþór Már Hinriksson, Sauðárkróki – Tónlistarmaður
  14. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Borgarbyggð – Lögreglumaður
  15. Sigurdís Katla Jónsdóttir, Dalabyggð – Nemi
  16. Sveinn Bernódusson, Bolungarvík - Járnsmíðameistari

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga