Fréttir | 21. apríl 2021 - kl. 13:52
Velheppnað lausnamót

Lausnamótið Hacking Norðurland fór fram dagana 15.-18. apríl þar sem unnið var með sjálfbæra nýtingu auðlinda Norðurlands út frá orku, vatni og mat. Yfir 70 þátttakendur skráðu sig til leika og þar af átta sem búsettir eru á Norðurlandi vestra. Lausnamótið var samstarfsverkefni Hacking Hekla, Eims, Nordic Food in Tourism, Samtaka sveitarfélaganna á Norðurlandi eystra og vestra og Nýsköpunar í norðri.

Markmið lausnamótsins var að efla frumkvöðlastarf og sköpunarkraft á svæðinu og þannig stuðla að nýjum viðskiptatækifærum og verkefnum, ásamt því að vekja athygli á því öfluga frumkvöðlasamfélagi sem er á Norðurlandi.

Lausnamótið fór fram á netinu í gegnum samsköpunarlausnina Hugmyndaþorp sem þróuð er af sprotafyrirtækinu Austan mána í samstarfi við Hacking Hekla. Þátttaka var því ekki háð staðsetningu. 

Á vef SSNV kemur fram að tæplega 70 þátttakendur skráðu sig til leiks og sjö þátttakendur kynntu verkefni sín fyrir dómnefnd. Um helmingur þátttakenda voru af Norðurlandi og þarf af átta búsettir á Norðurlandi vestra. Alls komu um 50 manns að lausnarmótinu á einn eða annan hátt sem fyrirlesarar, mentorar eða dómarar.

Guðríður Baldvinsdóttir, Salbjörg Matthíasdóttir og Berglind Ýr Ingvarsdóttir hrepptu fyrsta sætið í lausnamótinu með verkefnið Grænlamb - Keldhverfskt kjöt af algrónu landi lenti í fyrsta sætið. Verkefnið snýr að verðmætasköpun sauðfjárafurða með vottun um að fé gangi á vel grónu og sjálfbæru landi. Hér má lesa nánar um verkefnið. 

Upptökur af vefstofu, fyrirlestrum, kynningum og verðlaunaafhendingunni er að finna á Facebook síðum Hacking Hekla og Eims

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga