Fréttir | 21. apríl 2021 - kl. 20:32
Átta sóttu um lögreglustjóraembættið

Átta umsóknir bárust um embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra sem auglýst var laust til umsóknar 27. mars síðastliðinn. Gunnar Örn Jónsson sem áður gegndi stöðu lögreglustjóra á Norðurlandi vestra var í lok mars skipaður lögreglustjóri á Vesturlandi.

Umsækjendur um embættið eru:

Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir – aðstoðarsaksóknari
Birgir Jónasson – löglærður fulltrúi
Helgi Jensson – aðstoðarsaksóknari
Hildur Sunna Pálmadóttir – lögfræðingur
Karl Óttar Pétursson – lögfræðingur
Magnús Barðdal – útibússtjóri
Sigurður Hólmar Kristjánsson, settur lögreglustjóri
Stefán Ólafsson – lögfræðingur

Hæfnisnefnd sem hefur ráðgefandi hlutverk í ráðningarferlinu mun nú fara yfir umsóknirnar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga