Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar. Ljósm: ssnv.is
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar. Ljósm: ssnv.is
Fréttir | 21. apríl 2021 - kl. 20:44
Byggðagleraugu SSNV til Vinnumálastofnunar

Á ársþingi Samtaka veitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem haldið var í fjarfundi 16. apríl síðastliðinn, voru Byggðagleraugu SSNV veitt í fyrsta sinn. Viðurkenningin er veitt þeirri stofnun eða ráðuneyti sem þykir hafa skarað fram úr í fjölgun starfa og verkefna á Norðurlandi vestra. Vinnumálastofnun hlaut viðurkenninguna fyrir árangursríka uppbyggingu starfsstöðva stofnunarinnar á Hvammstanga og Skagaströnd.

Á vef SSNV kemur fram að starfsstöðvarnar báðar hafi mikla þýðingu fyrir samfélögin á Norðurlandi vestra og þyki fyrirmyndardæmi um árangursríkan flutning verkefna á landsbyggðina. Frá opnun þeirra hafi þær eflst verulega og starfi þar nú samtals vel yfir 40 starfsmenn. Slíkur fjöldi starfa hafi mikil áhrif í hagkerfi svæðisins og stuðli að aukinni byggðafestu og uppbyggingu í landshlutanum. 

Á vef SSNV segir: „Undanfarið hefur mikið verið rætt um störf án staðsetningar og almennt flutning starfa út á land sem m.a. hefur lengi verið baráttumál sveitarstjórnarmanna á Norðurlandi vestra. Til að vekja athygli á þessu og jafnframt hvetja og þakka þeim sem vel hafa staðið sig hefur stjórn SSNV ákveðið að veita á ársþingi ár hvert, viðurkenninguna Byggðagleraugun, þeirri stofnun eða ráðuneyti sem þykir hafa skarað fram úr í fjölgun starfa/verkefna á Norðurlandi vestra eða með öðrum hætti stuðlað að uppbyggingu hans.

Er viðurkenningunni ætlað að hvetja forsvarsmenn stofnana til að horfa með „byggðagleraugunum“ á verkefni sinna eininga og nýta þau tækifæri sem gefast til flutnings starfa/verkefna á landsbyggðina í samræmi við áherslur byggðaáætlunar og annarra áherslna ríkisins. Viðurkenningarskjalið er hannað af Ólínu Sif Einarsdóttur, grafískum hönnuði ÓE Design, sem búsett er í Skagafirði.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga