Við undirritun samningsins. Mynd: Aðsend.
Við undirritun samningsins. Mynd: Aðsend.
Fréttir | 27. apríl 2021 - kl. 17:37
Samningur um rekstur áfangastaðastofu

Í dag undirrituðu Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og eystra samning við Markaðsstofu Norðurlands um rekstur áfangastaðastofu. Áfangastaðastofur eru samstarfsvettvangur sveitarfélaga, ríkis og atvinnugreinarinnar og eru markmiðið með stofnun þeirra að efla stoðkerfi ferðaþjónustunnar og stuðla að jákvæðum framgangi hennar.

Meðal hlutverka eru gerð áfangastaðáætlana, að koma að gerð stefnumótunar í ferðaþjónustu, þarfagreining rannsókna, vöruþróun og nýsköpun, mat á fræðsluþörf auk þess að sinna svæðisbundinni markaðssetningu og vera grunneining í stoðkerfi ferðamála í landshlutunum.

Í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands kemur fram að hún hafi verið með samning við Ferðamálastofu um stoðkerfi ferðaþjónustu á starfssvæði sínu en nú hafi sá samningur verið færður yfir í samning atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Ferðamálastofu og landshlutasamtakanna. Samstarf við Íslandsstofu verði einnig eflt í þessu samhengi og gerður sérstakur samningur um markaðssetningarverkefni.

„Það er mikið fagnaðarefni að samstaða hefur verið á Norðurlandi um að halda áfram úti markvissu starfi fyrir landshlutann í heild sinni undir merkjum Norðurlands eða North Iceland eins og verið hefur frá árinu 2003 þegar Markaðsstofan var stofnuð. Stefna MN verður óbreytt, að aukning verði á vægi ferðaþjónustu allt árið sem tryggi uppbyggingu innviða, greiðar samgöngur, fleiri heilsársstörf og meiri framlegð í greininni. Ein af grundvallarforsendum þess er að beint áætlunarflug hefjist til Norðurlands,“ segir í tilkynningunni

Hér má má skoða nýjustu Áfangastaðaáætlun Norðurlands

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga