Fréttir | 04. maí 2021 - kl. 11:08
Byrjað að bólusetja árganga 1962-1966

Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær 3.000 skammta af bóluefni í dag og verður haldið áfram að bólusetja niður árganga með Astra Zeneca bóluefninu. Næstu árgangar eru 1962-1966. Á vef HSN segir að aðeins náist að bólusetja hluta þessa hóps í vikunni en það geti verið breytilegt eftir stöðum og á að jafnast út í næstu og þarnæstu viku.

Pfizer bóluefnið verður nýtt í seinni bólusetningu þeirra sem fengu bóluefni 13.-16 apríl og fyrri bólusetningu hjá þeim sem hafa undirliggjandi sjúkdóma og mega bara fá Pfizer. HSN hefur einnig fengið sendingu með bóluefni frá Janssen og verður það notað fyrir fólk eldri en 18 ára. Verður það gefið eins og önnur bóluefni í næstu forgangshópa og samkvæmt tilmælum sóttvarnarlæknis.

Á heilsugæslum á Norðurlandi, fyrir utan Akureyri mun fólk í þessum árgöngum og hópum fá boð í bólusetningu annað hvort með sms skilaboðum eða með símtali, þar sem tími og staðsetning kemur fram.

Sjá nánar á vef Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga