Fréttir | 04. maí 2021 - kl. 20:05
Málþing um sameiningar sveitarfélaga

Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir málþingi um sameiningar sveitarfélaga og verður það haldið í fjarfundarbúnaðinum Teams föstudaginn 7. maí klukkan 08:30-10:00. Málþingið er öllum opið. Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri á Blönduósi er á meðal frummælenda á málþinginu.

Dagskrá málþingsins

Ávarp formanns sambandsins
Aldís Hafsteinsdóttir

Hvað bera að hafa í huga við sameiningu sveitarfélaga
Róbert Ragnarsson, framkvæmdastjóri RR ráðgjafar

Þingeyingur
Helgi Héðinsson, oddviti í Skútustaðahreppi

Sveitarfélagið Suðurland
Sandra Brá Jóhannsdóttir, sveitarstjóri Skaftárhrepps

Húnvetningur
Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri á Blönduósi

Umræður

Hægt er að skrá sig á málþingið hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga