Ólafur og Ragnheiður Jóna sveitarstjóri. Mynd: hunathing.is
Ólafur og Ragnheiður Jóna sveitarstjóri. Mynd: hunathing.is
Fréttir | 06. maí 2021 - kl. 16:39
Ólafi þakkað fyrir vel unnin störf

Ólafur Jakobsson sem gegnt hefur starfi byggingafulltrúa í Húnaþingi vestra hefur látið af störfum hjá sveitarfélaginu, eins og fram kom í fréttum Húnahornsins í gær. Í tilkynningu á vef Húnaþings vestra þakkar sveitarstjórn Ólafi fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óskar honum alls hins besta í framtíðinni.

Húnaþing vestra hefur gert tímabundinn samning við Blönduósbæ um verkefni byggingarfulltrúa. Einnig hefur Skúli Húnn Hilmarsson verið ráðinn í tímabundna stöðu aðstoðarmanns byggingarfulltrúa.

Þorgils Magnússon, byggingarfulltrúi Blönduósbæjar, verður alla jafna með viðveru í Ráðhúsi Húnaþings vestra á fimmtudögum. Hægt er að ná á Skúla Hún, aðstoðarmann byggingarfulltrúa, á skrifstofu sveitarfélagsins frá klukkan 9-12 alla virka daga.

Erindi til byggingarfulltrúa er hægt að senda á netfangið byggingarfulltrui@hunathing.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga