Sundlaugin á Blönduósi. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Sundlaugin á Blönduósi. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Fréttir | 07. maí 2021 - kl. 13:55
Samkomutakmarkanir upp í 50 á mánudaginn

Breytingar verða gerðar á sóttvarnarreglum á mánudaginn og þá munu sam­komutak­mark­an­ir miða við há­mark 50 manns í stað 20. Sund- og baðstaðir og líkamsræktarstöðva mega taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum og sviðslistum verður 75 í hverju hólfi eða á sviði og hámarksfjöldi gesta á sitjandi viðburðum fer úr 100 í 150 manns.

Þá verður opnunartími veitingastaða lengdur um klukkustund. Einnig verða ýmsar tilslakanir gerðar á skólastarfi. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þessar breytingar í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Þær taka gildi frá og með mánudeginum 10. maí og eiga að gilda í rúmar tvær vikur.

Breytingarnar sem taka gildi á mánudaginn eru eftirfarandi:

  • Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 50 manns. Börn fædd 2015 og síðar verði áfram undanþegin.
  • Nándarregla verði áfram almennt tveir metrar.
  • Grímuskylda og leiðbeiningar um grímunotkun óbreyttar. Börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu.
  • Sund- og baðstaðir, skíðasvæði, tjaldsvæði og söfn opin fyrir 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Börn fædd 2015 og síðar teljist ekki með.
  • Líkamsræktarstöðvar opnar fyrir 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, en ekki fleiri en 50 manns í hverju rými. Önnur skilyrði óbreytt.
  • Íþróttir: Hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum 75 í stað 50 í hverju hólfi.
  • Sviðslistir: Hámarksfjöldi þátttakenda 75 í stað 50 í hverju hólfi/á sviði.
  • Sitjandi viðburðir: Hámarksfjöldi áhorfenda eða gesta á sitjandi viðburðum, s.s. íþróttakappleikjum, sviðslistum, athöfnum trúar- og lífskoðunarfélaga, verður 150 manns í hverju sóttvarnahólfi í stað 100. Önnur skilyrði óbreytt.
  • Verslanir: Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum 200 manns í stað 100.
  • Veitingastaðir: Opnunartími lengist um klukkustund, frá kl. 21 til kl. 22. Gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn fyrir kl. 23.00.

Skólastarf

  • Hámarksfjöldi fullorðinna 50 í hverju rými.
  • Hámarksfjöldi barna/nemenda verður 100 í hverju rými.
  • Foreldrar og aðstandendur mega koma inn í skólanna.
  • Blöndun milli hópa barna innan skóla heimil í sundi og íþróttum í grunnskólum.
  • Viðburðir fyrir utanaðkomandi heimilaðir með þeim takmörkunum sem almennt gilda.
  • Blöndun nemenda milli hólfa einnig leyfð í háskólum.

Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga